Heilsa og velferð
Líkamleg og sálræn heilsa í tengslum við notkun stafrænnar tækni. Tölvunotkun getur valdið álagi á líkamann, til dæmis augu (skjábirta), hendur (vegna músarnotkunar) og líkamann allan (vegna rangrar líkamsstöðu). Sálrænt álag hefur einnig færst í aukana og má þar nefna dæmi um netfíkn. Notendur þurfa að læra að tækninni fylgja hættur og með stafrænni borgaravitund verður til menning þar sem notendur læra að vernda sjálfa sig gegn andlegu og líkamlegu álagi.