Ólöglegt niðurhal
Þegar talað er um ólöglegt niðurhal þarf alltaf að hafa í huga höfundarrétt. Þegar efni er halað niður af netinu á ólöglegan hátt flokkast það ávallt undir brot á höfundarrétti. Sumir velta því kannski fyrir sér afhverju það er ólöglegt að ná í efni á netinu án þess að greiða fyrir það.
Þegar tónlist eða kvikmyndir er framleitt og sett á markað, hafa allir þeir sem að því komu, einhverjar tekjur eða hagsmuni af vinnunni sem er á bakvið verkið er og eins af sölu og dreifingu efnisins. Vegna þessara atriða er varan, tónlistin eða kvikmyndin, vernduð með höfundarréttarlögum. Því er það svo að ekki má fjölrita, endurgera eða selja efnið áfram á neinn hátt nema með leyfi þeirra sem efnið eiga. Ef náð er í efni á netinu sem hefur að geyma höfundarrétt og ekki greitt fyrir það, er það flokkað sem ólöglegt athæfi, ólöglegt niðurhal. Það sama á við um að deila út efni sem hefur að geyma höfundarrétt, hvort sem það er gert á rafrænu formi eða stafrænu. Ef ekki hefur fengist leyfi frá þeim sem hafa höfundarréttinn yfir efninu, þá er ólöglegt að hala því niður og deila því.
Til að reyna að koma í veg fyrir ólöglegt niðurhal eru starfræktir tveir hópar í Bandaríkjunum. Þeir hafa umsjón yfir ólöglegu niðurhali á tónlist og kvikmyndum. Þessir hópar kallast „Recording Industry Association of America (RIAA)“ og „The Motion picture Association of America (MPAA)“. Þessir tveir hópar hafa það starf að fylgjast grannt með ólöglegu niðurhali á vefsíðum og eins ólöglegri dreifingu efnis.
Á netinu er hægt að lesa ýmsa dóma vegna ólöglegs niðurhals. Kostnaður vegna slíks athæfis getur verið fjárhagslegur og þá í formi sekta og lögfræðikostnaðar en einnig getur brotið varðað fangelsisvist. Samkvæmt „Digital millennium copyright act“ eru brot á höfundarrétti refsiverð með lögum. Þeir sem gerast sekir við slík brot geta átt yfir höfði sér refsingar, mis alvarlegar eftir löndum. Niðurhalið er að sjálfsögðu ekki bara alvarlegt fyrir þá sem hala því niður, því þeir sem efnið eiga geta orðið fyrir miklu tjóni. Niðurhal getur leitt til þess að áhorf kvikmynda eða sjónvarpsefnis verði minna og þar af leiðandi verða tekjurnar minni. Ólöglegt niðurhal getur einnig orðið til þess að fólk kaupi síður áskriftir af sjónvarpsstöðvum.
Það er erfitt að segja til um hversu mikið fjárhagslegt tjón hefur orðið af ólöglegu niðurhali en MPAA áætlaði að tekjutap kvikmyndaiðnaðarins árið 2005 vegna athæfisins hafi verið um 20.500 milljónir dollara. Rannsókn sem gerð var á ólöglegu niðurhali sýndi fram á að 23,8% af heildargagnaumferð á netinu væri ólöglegt niðurhal.
Ýmislegt hefur verið reynt til að sporna við ólöglegu niðurhali og þar með vekja athygli á höfundarréttinum. Þessar tilraunir hafa t.d. verið í formi sjónvarpsauglýsinga þar sem reynt er að vekja athygli á skaðanum sem hlýst af ólöglegu niðurhali. Þetta hefur þó ekki skilað miklum árangri, alla vega ekki ennþá. Tónlistarframleiðendur hafa reynt að fara þá leið að fara í mál við framleiðendur forrita sem bjóða upp á ólöglegt niðurhal, sú leið hefur heldur ekki gengið sem skyldi.
Heimildir:
Envisional. (2011). Technical report: An estimate of infringing use of the internet -
summary. Envisional. Sótt 20. apríl 2014 af:
Heimasíða Webster University:
Mynd:
Heimasíða Gaijinpot